Gisting á Hotel Cabin hentar sérstaklega vel þeim sem koma utan af landi og vilja halda fundi, ráðstefnu eða árshátið í borginni.
Hópar
Hótel Cabin hentar vel til að taka á móti hópum. Þar eru mörg herbergi sem eru eins útlítandi en það hentar sérstaklega vel þegar tekið er á móti hópum.
Aðstaðan á hótelinu er einnig góð og er hópum boðið upp á að nýta sér salatbarinn okkar en einnig er hægt að panta hópamatseðil sem er þá tveggja eða þriggja rétta.
Skóla - og íþróttahópar
Starfsfólkið hefur mikla og langa reynslu af að taka á móti íþrótta – eða skólahópum.
Margir hópar velja að fara í salatbarinn hjá okkur á kvöldin og reynum við þá að hafa heitan rétt með sem fellur í kramið hjá yngri kynslóðinni.
Standard herbergin eru ódýrustu herbergin sem við bjóðum upp á og eins og nafnið gefur til kynna eru þau mjög einföld en notaleg. Öll standard herbergi hafa sér baðherbergi með sturtu.
Tveggja manna standard herbergin eru ódýrustu herbergin sem við bjóðum upp á og eins og nafnið gefur til kynna eru þau mjög einföld en notaleg. Öll standard herbergi hafa sér baðherbergi með sturtu.
Þriggja manna standard herbergi sem hentar þeim sem vilja ódýran valkost.
Superior herbergin eru stærri og búin auknum þægindum. Superior herbergin eru um 18 fermetra stór.
Superior herbergi með útsýni eru öll staðsett á 7 hæð og hafa því frábært útsýni og eru með stærri glugga og eru því mjög björt þegar myrkrunargluggatjöldin eru ekki dregin fyrir.