Ef þig vantar gistingu fyrir ættarmótið, veisluna, fundinn, árshátíðina eða aðrar uppákomur á Blönduósi eru Glaðheimar góður staður til að vera á. Veitingastaðurinn
Potturinn og Pannan er í göngufæri sem og
Félagsheimilið Blönduósi.
TjaldsvæðiðTjaldsvæðið á Blönduósi er staðsett í Brautarhvammi sem liggur hægra
megin við þjóðveg 1 þegar komið er að Blönduósi frá Reykjavík.
Fallegar gönguleiðir eru við tjaldsvæðið en hægt er að ganga upp með ánni og yfir
göngubrú útí litla eyju sem Hrútey. Þar er afar fallegur gróður og
fjölskrúðugt fuglalíf. Einnig er hægt að ganga eftir göngustígum með
Blöndu.
SumarhúsinSumarhúsin eru til leigu allt árið. Gistirými í 18 velbúnum húsum fyrir
allt að 90 manns. Heitir pottar og sauna í mörgum húsum.
Við viljum vekja athygli á að glæsileg ný
sundlaug var opnuð á Blönduósi sumarið 2010.