Björk Jakobsdóttir er einhver reynslumesti veislustjóri landsins. Hún hefur stýrt 5000 manna Laugardalshallarveislum, niður í 20 manna kvennapartý og allt þar á milli. Hún Keyrir veisluna áfram af öryggi, fumlaus og hress.
Björk leggur mikið á sig við að kynnast innviðum þeirra fyrirtækja, nú eða hjónabanda, sem hún er að veislustýra hjá. Kann öll nöfn og gerir óspart grín að viðstöddum áður en hún fer með sitt eigið efni.
Hún hefur einnig tekið að sér að koma fram með 30 mínútna uppistand sem hingað til hefur alls staðar slegið í gegn.
Björk er sérfræðingur í fólki!