Athugið! Á sumrin er salurinn ekki leigður út til veisluhalda frá 1. júní til 15. september ár hvert.
Veislusalur Hraunbúa býður upp á spennandi möguleika fyrir minni sem stærri hópa. Fallegt og rólegt umhverfi býður upp á góð tækifæri.
Salurinn tekur um 110 manns í sæti og er tilvalinn fyrir ýmis tilefni s.s. útskriftir, fermingar, skírnarveislur, ráðstefnur, fundi námskeið, kennslu og fleira.
Salurinn er fallegur, með rúmgóðu anddyri og flottri eldhúsaðstöðu. Aðgengi er gott og bjóðum við upp á fallegan borðbúnað ef þess er óskað. Salurinn leigist út án veitinga og er aldrei leigður út lengur en til miðnættis.
Salurinn er leigður út með starfsmanni allan tímann. Starfsmaðurinn er á staðnum til að aðstoða, m.a. við uppröðun og skreytingar, sinnir eldhúsi, hellir uppá kaffi og sér m.a. um öll þrif og uppvask, en þjónar ekki til borðs.
Gert er ráð fyrir tveim starfsmönnum ef gestafjöldi fer yfir 60 manns. Salurinn er jafnan afhentur samdægurs.