Á Óðinsgötu í miðbæ Reykjavíkur er til leigu spennandi rými fyrir veislur og viðburði.
Gengið er beint inní salinn frá götunni.
Mögulegt er að skipta salnum í innra og ytra rými. Innsti hluti salarins myndar svið sem hægt er að fylgjast með allstaðar að úr salnum.
Salurinn hentar því mjög vel fyrir standandi veislur og móttökur sem og fyrir menningarviðburði, fyrirlestra, tónleika, kennslu og fleira.
Mögulegt er að nýta gott móttöku eldhús í salnum og taka með sínar eigin veitingar. Einnig er vínveitingaleyfi í salnum þannig að hægt er að hafa opin bar á meðan viðburði stendur.
Athugið að alla jafna eru fastir viðburðir í salnum á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldum. En vinsamlega sendið okkur fyrirspurn um lausa daga í salnum