Gámurinn - Sjávarklasinn

Einstakt rými fyrir hádegisverarfundi með útsýni yfir Reykjavíkurhöfn

Fjölbreyttar stærðir á fundarsölum
Vinnuherbergi fyrir góða vinnufundi
Myndvarpar og sýningartjöld
Góð kaffi og mataðstaða
Þægileg lýsing og góðir stólar
Þráðlaust net
Veitingastaður á hæðinni
Fjölnotarými á neðri hæð
Á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn
8 fundarrými , veislusalur og fjölnotarými


Nánari upplýsingar
Hús Sjávarklasans er staðsett að Grandagarði 16 við Reykjavíkurhöfn. Húsið er samfélag fyrirtækja og frumkvöðla í hafsækinni starfsemi.

Í húsinu er úrval af fullbúnum fundarherbergjum og góðum vinnherbergjum með tilheyrandi búnaði. Myndvarpar, sýningartjöld og háhraða nettenging er í húsinu. 

Veitingastaðurinn Bergsson RE
Á hæðinni er veitingastaðurinn Bergsson RE þar sem boðið er uppá ljúffengar veitingar, hvort sem um er að ræða kaffiveitingar, hádegisverð, snyttur og pinnamat eða íburðamikil veisluhlaðborð.

Á jarðhæð Sjávarklasans er rúmgott fjölnota rými sem hentar fyrir vörursýningar, kynningar og veislur.
Stór hurð er fyrir fjölnota rýminu sem gerir það mögulegt að keyra inn aðföngum eftir þörfum.

Sjávarklasinn
Hús sjávarklasans er samfélag yfir 50 fyrirtækja og frumkvöðla í hafsækinni starfsemi. Hér eru fyrirtæki í fiskeldi, fisksölu, sjávarútvegstækni, hugbúnaði, hönnun, líftækni, snyrtivörum og ýmsu öðru.  Hús sjávarklasans er samfélag þessara fyrirtækja og vettvangur fyrir þau að skapa saman ný verðmæti.

Þúsundir innlendra og erlenda gesta heimsækja Hús sjávarklasans á hverju ári. Íslenski sjávarklasinn rekur Hús sjávarklasans í samstarfi við Faxaflóahafnir, en húsið var áður kallað Bakkaskemman og á sér ríka sögu.

Gámurinn - Sjávarklasinn
Grandagarði 16 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer
www.hussjavarklasans.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar