Sykursalur er nýr veislusalur og fundarsalur í Vatnsmýri, í þægilegu göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.
Sykursalur tekur um 180 manns í sæti eða 200 manns í standandi veislur og er staðsettur í Grósku hugmyndahúsi, sem margir telja eitt af fallegustu húsum Reykjavíkur.
Salurinn er glæsilega hannaður af HAF Studio og borð og stólar eru bæði falleg og þægileg.
Salurinn er mjög vel búinn tækjum, þar er að finna fullkomið hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, ljósabúnað til að skapa réttu stemninguna fyrir viðburðinn ásamt myndvarpa og sýningartjaldi.
Aðgengi að salnum er gott en þar er bæði stórt
bílaplan fyrir framan og bílakjallari undir húsinu. Salurinn er með sér inngangi.
Salurinn er leigður út með vínveitingum
Bóka salinn
Sykursalur er leigður út fyrir hvers kyns veislur og viðburði og hefur leyfi til klukkan 03:00
Aðstaðan hentar einnig vel fyrir námskeið, fyrirlestra og kennslu.
Sendu okkur fyrirspurn ef þú hefur áhuga á að bóka salinn eða ef þig vantar nánari upplýsingar.