Miðgarður er fjölnota salur í Menningarhúsi Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal.
Salurinn er 200 fermetrar að stærð og rúmar 80 manns í skólastofu uppstillingu eða 160 manns í leikhús uppstillingu.
Aðkoman að salnum er góð og gengið inn í hann á tvo vegu. Einnig er hægt að opna salinn upp inn í forrýmið þegar það hentar.
Salurinn er búinn lausum stólum og færanlegri sviðsupphækkun sem býður uppá sveigjanlega uppstillingu. Að bakatil er aðstaða fyrir listamenn.
Í salnum er gott hljóðkerfi, myndvarpi og sýningartjald og stýranleg lýsing sem og nýr flygill.
Salurinn hentar mjög vel fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi, leiksýningar, tónleika og ýmiss konar viðburðahald.
Á staðnum er einnig Smiðjan fundarherbergi fyrir 16-20 manns og Skemman fyrir tölvukennslu og námskeið. Hér má skoða fundarherbergin nánar.
Salirnir eru hluti af miðstöð mennta, menningar og íþrótta í Úlfarsárdal, 113 Reykjavík, nánar tiltekið í þeim hluta hússins sem við köllum Miðdal (Borgarbókasafn, Dalslaug). Miðstöðin liggur neðst í Úlfarsárdalnum til móts við Grafarholt. Sjá nánar.
Verðskrá:
Leiga virka daga, 1/2 dagur - kr. 30.000
Leiga virka daga, heill dagur - kr. 48.000
Leiga virka daga, (kvöld 18-22) - kr. 45.000 Helgarleiga - kr. 70.000 dagur/kvöld
Hljóðkerfi og uppsetning - kr. 10.000