Hamraborg veislusalur
Í Hamraborginni í miðbæ Kópavogs er nýuppgerður fallegur salur með útsýni yfir Fossvoginn. Salurinn er sérhannaður til veislu og fundarhalda með aðstöðu eins og best verður á kosið fyrir allt að 90 manns í sæti.
Í salnum er bar fyrir vínveitingar og drykki og framreiðsluborð fyrir heitan mat.
Gott hljóðkerfi er í salnum fyrir tal og tónlist, tveir skjávarpar og sýningartjöld, ásamt stillanlegri loftlýsingu til að skapa réttu stemninguna.
Auk þess er hægt að setja upp færanlega sviðsupphækkun með ræðupúlti. Sviðið hentar fyrir ræðuhöld, skemmtiatriði og litla hljómsveit.
Salurinn er alltaf leigður með vínveitingum en einnig er gott samstarf við veisluþjónustu sem býður upp á fjölbreytt úrval af matar og kaffiveitingum.
Hamraborg veislusalur hentar vel fyrir brúðkaup, afmæli, árshátíðar, jólahlaðborð og fermingarveislur. Einnig er staðurinn upplagður fyrir fundi og fyrirlestra.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.