Salurinn rúmar 50 manns til borðs en 70 manns í standandi veislur.
Framan við salinn er veitingastaður hótelsins sem býður upp á úrval veitinga af matseðli, ljúffenga rétti með Ítölsku ívafi sem og hópmatseðla og veisluþjónustu fyrir flest tækifæri. Þar er bar og setustofa. Matarveitingar og drykkir á góðu verði.
Í salnum eru þægilegir stólar og borð sem hægt er að raða upp á fjölbreyttan hátt eftir tilefni. Bar fyrir afgreiðslu á drykkjum, skjávarpi og hljóðkerfi fyrir dinnertónlist.
Úr salnum er hægt að ganga út á verönd framan við salinn.
ODDSSON veislusalur hentar vel fyrir fermingar, erfidrykkju og afmæli. Vinahópa sem vilja fá sér góðan mat og drykk, árshátíðar, jólahlaðborð eða brúðkaupsveislur.
Salurinn hentar einnig mjög vel fyrir fundi, námskeið, kennslu.
Salurinn er leigður út frá klukkan 11:00 á morgnanna til klukkan 23:00 á kvöldin.
Salurinn leigist með eða án veitinga
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.