Sesseljuhús Sólheimar

Fundir og ráðstefnur - Sólheimar Grímsnesi

Bíosalur sem tekur 100 manns
Fundarsalur fyrir 15 - 50 manns
Myndvarpi og sýningartjald
Hljóðkerfi
Gott aðgengi
Gisting fyrir allt að 46 manns á staðnum
10 min. akstur á tjaldstæði
Fullbúinn veitingasalur í Vigdísarhúsi


Nánari upplýsingar
Sólheimar í Grímsnesi
Sólheimar í Grímsnesi er einstakur staður til að halda veislur, fundi, ráðstefnur, menningarviðburði eða námskeið. Þar er friðsæld og falleg náttúra í aðeins rúmlega klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. 

Á staðnum eru veislusalur og góð fundaraðstaða ásamt fjölbreyttri starfsemi eins og skógræktar- og garðyrkjustöðvar sem  stunda lífræna ræktun, Sögusafn, matvinnsla, verslun, kaffihús með lífrænni kaffibrennslu og gistiheimili. 

Sesseljuhús fyrir fundi
Í Sesseljuhúsi er fundarsalur fyrir 15 - 50 manns eftir því hvernig raðað er upp og bíósalur sem tekur 100 manns í sæti.

Bíósalurinn hentar vel fyrir fundi, fyrirlestra, kennslu sem og kvikmyndasýningar. Salurinn er með myndvarpa og sýningartjaldi og hljóðkerfi.

Fundarsalurinn. Þar er hægt að raða borðum og stólum upp að vild t.d. sem skólastofu, U-borð eða í leikhúsuppstillingu. Í salnum er skjávarpi, sýningartjald, tússtafla og frístandandi flettitafla.

Í Sesseljuhúsi er eldhúskrókur til að hella uppá kaffi og te ásamt ísskáp og uppþvottavél. Engin eldunaraðstaða er í Sesseljuhúsi en hægt er að koma með tilbúinn mat eða panta veitingar frá kaffihúsi staðarins.

Arinstofan fyrir móttöku
Gengið er beint inní Arinstofuna þegar gengið er inn í húsið. Arinstofan er opið miðrými með súlum og hentar vel fyrir léttar veitingar fyrir fund eða milli funda. Þar myndast notaleg stemning þegar kveikt er upp í arninum. Arinstofan hentar einnig vel fyrir jóganámskeið.


Vigdísarhús veitingasalur
í námunda við Sesseljuhús er Vigdísarhús. Þar er fallegur og bjartur veislusalur með útsýni yfir fjöllin og uppsveitir Suðurlands. Hér má skoða nánari upplýsingar um Vigdísarhús

Vigdísarhús tekur um 120 manns í sæti og um 150 manns í standandi veislur og viðburði.  Fullbúið eldhús er á staðnum ásamt borðbúnaði. 

Leigist með eða án veitinga
Mögulegt er að koma með eigin veitingar í veislur, elda á staðnum eða að kaupa veitingar af veisluþjónustu staðarins.

Gisting
Gistiheimili Sólheima er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum, samtals fyrir 46 manns.

Tjaldstæði er á Borg en þangað er 10 mínútna akstur frá Sólheimum.

Aðstaðan á Sólheimum er því einstaklega góð og fjölbreytt hvort sem er fyrir Veislur, fundi, ráðstefnur eða kennslu.

Hægt er að nýta til dæmis fundarsal fyrir undirbúning, bíósalinn fyrir fyrirlestur eða ráðstefnu og hafa síðan borðhald í Vigdísarhúsi á eftir. 

 


Sesseljuhús Sólheimar
Selfoss 805 Sólheimar
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar