Ness salurinn
Ness salurinn í húsi golfklúbbsins á Seltjarnarnesi er fallegur nýuppgerður salur á einstökum stað. Húsið er staðsett á sunnanverðum Gróttutöngum á Seltjarnarnesi. Örstutt frá miðbæ Reykjavíkur.Salurinn tekur allt að 80 manns til borðs og leigist út með eða án veitinga.
Hægt er að raða borðum upp á mismunandi hátt eftir fjölda gesta og til að skapa þá stemningu sem hentar veislunni.
Í salnum er bar til að bera fram drykki og góð aðstaða fyrir framsetningu á veitingum.
Einnig er hægt að kaupa matarveitingar og drykki af barnum sé þess óskað.
Framan við salinn er verönd sem hægt er ganga út á beint úr salnum. Næg bílastæði.
Ness hentar þeim sem vilja halda veisluna í spennandi umhverfi í mikilli nánd við náttúruna en samt svo stutt frá miðbæ Reykjavíkur.
Hentar vel fyrir árshátíðir, afmæli, fyrirtækjaveislur. brúðkaup og fermingarveislur. Einnig hentar salurinn fyrir fundi, námskeið og kennslu.
Salurinn er aðeins leigður út yfir vetrartímann.