Hótelið býður uppá veislusal sem getur tekið allt að 450 manns í sæti. Salnum er einnig hægt að skipta upp í 3 minni sali fyrir smærri veislur.
Salurinn er vel tækjum búin með góðu hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, skjávörpum, þráðlausum hljóðnemum og þægilegum stólum.
Í salnum er svið fyrir hljómsveitir og skemmtikrafta og gott dansgólf.
Framan við salinn er bar og gott forrými með setustofu.
Á hótelinu er gisting fyrir stóra hópa og einstök fyrsta flokks heilsulind snyrti og nuddstofa
Á Hótel Selfossi er einnig glæsilegur veitingastaður, Riverside Restaurant, með stórfenglegu útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall. Veitingastaðurinn tekur allt að 200 manns í sæti, þar er einnig bar með notalegri setustofu.
Aðstaðan hentar því mjög vel fyrir bæði stórar árshátíðar, brúðkaupsveislur, jólahalðborð, þorrablót og dansleiki. En með því að skipta upp sölum er hægt að halda minni veislur og eins og fermingarveislur, skírnarveislur erfidrykkju og fleira.