Glæsilegur veislusalur með stóru fordyri og útipalli í fallegum Laugardalnum.
Salurinn er mjög passlegur fyrir 80-130 manns en hann rúmar þó allt að 150 manns í sæti og allt að 250 manns í standandi boðum og veislum.
Salurinn er vinsælastur fyrir brúðkaup, fermingar, afmæli, jólaskemmtanir, fundi og ráðstefnur en hentar í sjálfu sér fyrir flest tilefni. Salnum fylgir m.a. skjávarpi og tjald, ræðupúlt og míkrófónn. Hljóðkerfi er fyrir míkrófón og myndasýningar en ekki fyrir dans eða hljóðfæri.
Hafið samband við Láru Dís sem sér um bókanir