Hann er tilvalinn fyrir stærri kammerhópa, jazz hljómsveitir, kóra og ýmsar tegundir viðburða.
Svalir eru allan hringinn í salnum og sviðið er færanlegt.
Salurinn er búinn sérhönnuðum ljósabúnaði sem hægt er stilla í ýmsum litbrigðum og búa þannig til þá stemmningu sem óskað er eftir.
Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Norðurljós og Silfurberg þannig að auðvelt er að nýta salina saman fyrir stærri viðburði.
Norðurljós rúmar 520 manns í leikhúsuppröðun og 320 manns í veisluuppsetningu
Stór gluggi er á milli Norðurljósa og rýmisins fyrir fram sem hleypir dagsbirtu inn í salinn
Búnaður
• Upphengipunktar í lofti yfir sviði og áhorfendum u.þ.b. 2,4 metra á miðju.
• Ljósapípur í lofti fyrir sviðsljós með 2,4 m millibili í báðar áttir.
• Kvikmyndatjald og skjávarpi, skjáir fyrir skjávarpa og skjávarpar fyrir skiptan sal.
• Færanlegt hátalarakefi og fast tilkynningarkerfi.
• Hljóð- og myndkerfi ásamt símafundakerfi.
• Túlkunar- og hlustunarkerfi.
• Upptaka og útsending.
• Ræðupúlt, stjórnborð fyrir hljóð og ljós.
• Sviðsljós og kastarar með ljósdeyfum.