Sjónarhóll er nýr og glæsilegur veislusalur sem Nauthóll býður til leigu. Hann er staðsettur við rætur Öskjuhlíðar og skartar óviðjafnanlegu útsýni yfir hafið. Úrvalslið matreiðslu- og framreiðslumanna okkar sjá um að gera viðburðinn þinn ógleymanlegan.
Sjónarhóll býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Hann er tilvalinn til hvers kyns veisluhalda en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fundi. Salurinn rúmar um 100 gesti til borðs og allt að 250 gesti í standandi veislu.
Sjónarhóll er vel tækjum búinn, þar er t.a.m. svið, hágæða hljóðkerfi, skjávarpi og ræðupúlt.
Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
Athugið að salurinn leigist aðeins með veitingum.
Vinsamlegast hafið samband til að fá góð tilboð.