Gala er fallegur veislusalur miðsvæðis í Kópavogi.
Salurinn er bjartur og fallegur og hentar vel fyrir hvers konar mannfagnað eða ráðstefnur.
Þegar salurinn er fullnýttur eru sæti fyrir 140 manns en hægt er að skipta salnum í tvennt og nota eingöngu annan hlutann ef um minni veislur er að ræða.
Allur búnaður til ráðstefnuhalds er til staðar og því einkar hentugur fyrir ráðstefnur.
Fatahengi og salernisaðstaða er til fyrirmyndar. Fatahengið er hannað með stórarveislur í huga.
Salernin eru fimm, fjögur fyrir gesti og eitt inn af eldhúsi fyrir starfsfólk. Gott vinnupláss er í eldhúsi og allur tækjabúnaður til staðar.
Í salnum er bar, og koníakshorn og útgengt út á rúmgóðar svalir.
Salurinn er með fullkomnu framreiðslueldhúsi, eldavél, stórum ísskáp og uppþvottavél.
Salurinn hentar vel fyrir hverskyns mannfangnaði og veislur, fermingar, brúðkaup, árshátíðar, afmæli og fleira.
Salurinn leigist út án veitinga.
Í salnum er eftirfarandi:
• Borðbúnaður fyrir 140 manns
• Kertastjakar og blómavasar
• Helluborð, stór bakarofn og súpupottur
• Hraðsuðuketill, kaffivél og hitabrúsar
• Hraðvirk uppþvottavél
• Stór kælir